spot_img
HomeFréttirTómas samdi við Þór Þorlákshöfn

Tómas samdi við Þór Þorlákshöfn

Bakvörðurinn efnilegi, Tómas Heiðar Tómasson, mun leika með Þór Þorlákshöfn á næstu leiktíð í Dominos-deildinni í körfuknattleik. Mbl.is greindi frá þessu í gær.
 
Í frétt mbl.is segir ennfremur:
 
Tómas er uppalinn í Fjölni og var lykilmaður hjá liðinu í vetur og einnig tímabilið 2010-2011 en í fyrra spilaði hann í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Tómas er 21 árs og skoraði tæplega 13 stig að meðaltali fyrir Fjölni í deildinni í vetur.
 
Samkvæmt heimildum Mbl.is voru mörg lið á eftir Tómasi síðustu vikurnar eða eftir að ljóst varð að Fjölnir héldi ekki sæti sínu í úrvalsdeildinni. 
 
Á föstudag var greint frá því að Guðmundur Jónsson færi frá Þór til Keflavíkur. Hann hefur verið einn af bestu mönnum Þórs síðustu tvö tímabil en Benedikt Guðmundsson þjálfari Þórsara var greinilega ekki lengi að finna öflugan mann í hans stað. 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -