spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaTómas Orri til Marshalltown

Tómas Orri til Marshalltown

Hornfirðingurinn Tómas Orri Hjálmarsson mun halda vestur um haf fyrir komandi tímabil og leika fyrir Marshalltown Community College í bandaríska háskólaboltanum.

Tómas Orri er 18 ára, 196 cm bakvörður sem að upplagi er úr Sindra. Eftir að hafa leikið upp yngri flokka félagsins var hann kominn í meistaraflokkshóp þeirra 2018. Á síðasta tímabili skilaði hann 8 stigum, 5 fráköstum og stoðsendingu að meðaltali í 32 leikjum spiluðum fyrir félagið í fyrstu deildinni.

Tómas Orri mun fara í NJCAA D1 deildina en deildin heitir National Junior College Athletic Association og var stofnuð 1938. NJCAA er yfirheitið á íþróttadeildum fylkisrekinna menntastofnanna.

Fréttir
- Auglýsing -