spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Tólf manna hópurinn klár - Collin, Kristinn og Dagur ekki með

Tólf manna hópurinn klár – Collin, Kristinn og Dagur ekki með

Ísland mætir Belgíu í mikilvægum leik í forkeppni Eurobasket 2021 í kvöld þar sem Ísland verður að ná í sigur til að eiga betri möguleika á að komast í lokakeppni mótsins. Leikurinn fer fram í kvöld, 29. nóvember kl 19:45 í Laugardalshöllinni.
Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið þá 12 leikmenn sem leika í kvöld gegn Belgíu kl. 19:45 í Laugardalshöllinni. Miðasala á Tix.is
Í ljós hefur komið að Haukur Helgi Pálsson er meiddur og þarf því að hvíla í kvöld.
Þeir leikmenn sem eru í æfingahóp og eru ekki í liðinu í kvöld eru þeir Collin Pryor, Stjörnunni, Kristinn Pálsson, Njarðvík og Dagur Kár Jónsson, Raiffeisen Flyers Wels í Austurríki.

Landslið karla er því þannig skipað í kvöld:

# Leikmaður F. ár Hæð Staða Félag Landsleikir
0 Haukur Óskarsson 1991 194 F Haukar 2
3 Ægir Þór Steinarsson 1991 182 B Stjarnan 55
5 Gunnar Ólafsson 1993 192 F Keflavík 7
8 Hlynur Bæringsson 1982 200 M Stjarnan 122
9 Jón Arnór Stefánsson 1981 196 B KR 98
10 Elvar Már Friðriksson 1994 186 B Njarðvík 34
13 Hörður Axel Vilhjálmsson 1988 196 B Keflavík 74
19 Kristófer Acox 1993 198 F KR 36
21 Ólafur Ólafsson 1990 194 F Grindavík 26
23 Hjálmar Stefánsson 1996 199 F Haukar 4
33 Danero Thomas 1986 195 F Tindastóll 2
34 Tryggvi Snær Hlinason 1997 215 M Monbus Obradorio (ESP) 29
Þjálfari: Craig Pedersen
Aðstoðarþjálfarar: Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson
Sjúkraþjálfari: Jóhannes Már Marteinsson og Halldór Fannar Júlíusson
Fréttir
- Auglýsing -