spot_img
HomeFréttirTíu í röð hjá Keflavík: ÍR burstaði Snæfell

Tíu í röð hjá Keflavík: ÍR burstaði Snæfell

21:37
{mosimage}

(Bobby Walker treður með tilþrifum gegn Skallagrím í kvöld) 

Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld þar sem Keflvíkingar styrktu enn frekar stöðu sína á toppi deildarinnar með 12 stiga sigri á Skallagrím. Lokatölur leiksins í Sláturhúsinu voru 92-80 Keflavík í vil.

 

Í Njarðvík mættust heimamenn og Fjölnir og fóru Njarðvíkingar með 87-75 sigur af hólmi. Þá vann KR Tindastól 97-91 og komust í 2. sæti deildarinnar og ÍR burstaði Snæfell 102-77 í Seljaskóla.

 

Úrslit kvöldsins:

Keflavík 92-80 Skallagrímur

Njarðvík 87-75 Fjölnir

KR 97-91 Tindastóll

ÍR 102-77 Snæfell

{mosimage}

(Jóhann Árni Ólafsson í baráttunni gegn Fjölni í Ljónagryfjunni)

Fréttir
- Auglýsing -