spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaTindastóll vann með minnsta mun í stórkostlegum körfuboltaleik

Tindastóll vann með minnsta mun í stórkostlegum körfuboltaleik

Tindastóll tók á móti Álftnesingum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Staðan var jöfn í einvíginu eftir sigur Álftaness í Kaldalónshöllinni síðasta föstudag.

Rétt fyrir leik bárust þær fréttir að Arnar Björnsson hafði eignast barn um hálftíma áður og karfan.is óskar honum auðvitað innilega til hamingju!

Leikurinn fór af stað og bar þess merki að leikmenn höfðu spennustigið ekki of vel stillt því fyrsta karfa leiksin kom ekki fyrr en eftir rúmar 2 mínútur þegar Justin James kom gestunum í 0-3 með góðu skoti. Stólar svöruðu þó fljótt og komust í 23-15 þegar 1:37 voru eftir af leikhlutanum. Staðan var svo 28-21 heimamönnum í vil við leikhlutaskiptin. Annar leikhluti var svo gríðarlega jafn en Stólar þó alltaf skrefinu á undan og leiddu 49-46 í hálfleik eftir geggjaða körfu frá Sadio.

Tölfræði leiksins

Heimamenn tóku svo völdin á vellinum í þriðja leikhluta, voru ákveðnir í sókninni og lokuðu leið gestanna að körfu sinni langa kafla. Álftanes skoraði einungis 14 stig í leikhlutanum og Stólar leiddu 71-60 fyrir lokaátökin. Grettismenn voru kátir og stemningin í Sikinu frábær. Stólarnir héldu yfir 10 stiga mun nokkurn veginn fram í miðjan leikhlutann en þá tóku gestirnir á sprett og fóru að naga niður forskotið. Lokamínúturnar voru svo æsispennandi og Basile hefði getað klárað leikinn nokkurn veginn með því að setja tvö víti þegar 9 sekúndur voru eftir en hann setti bara annað og Justin James jafnaði með þrist þegar einungis 2 sekúndur voru eftir sem Stólar náðu ekki að nýta. Framlenging!

Myndasafn ( væntanlegt )

Stólar leiddu 98-95 þegar rúm mínúta var eftir af framlengingu en gestirnir gáfust aldrei upp og þristur frá Herði Axel auk tveggja víta frá Hauki komu þeim í 98-100. Arnar Björnsson kom Stólum aftur yfir með þrist þegar 19 sekúndur voru eftir og Davis Geks kláraði svo leikinn á vítalínunni þó Okeke hafi náð að koma muninum niður í 1 stig eftir að hafa klikkað á 2 vítum, náði að blaka frákastinu ofaní. Þvílíkur leikur!

Hjá Stólum var Basile frábær, sérstaklega í seinni hálfleik og endaði með 25 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar. Adomas Drungilas var með 10 stig og 10 fráköst. Hjá gestunum átti Haukur Helgi tröllaleik með 28 stig og 11 fráköst

Viðtöl

Davis Geks
Kjartan Atli
Benedikt Guðmundsson
Giannis Agravanis
Haukur Helgi

Umfjöllun / Hjalti Árna

Fréttir
- Auglýsing -