spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaTindastóll sigraði Njarðvík í framlengingu

Tindastóll sigraði Njarðvík í framlengingu

Stelpurnar í Tindastól tóku á móti Njarðvík í 1. deild kvenna í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.  Strákarnir höfðu unnið Val á fimmtudaginn eftir framlengingu í æsispennandi leik og stelpurnar létu sitt svo sannarlega ekki eftir liggja og gerðu það sama gegn Njarðvík eftir frábæran seinni hálfleik.

Leikurinn byrjaði jafnt en gestirnir frá Njarðvík tóku kipp undir lok fyrsta leikhluta og leiddu að honm loknum með 9 stigum 13-22.  Þær bættu svo í forystuna í öðrum leikhluta og voru að hitta vel á meðan heimastúlkur virkuðu ráðvilltar og ekki alveg tilbúnar í ákafan varnarleik Njarðvíkinga sem stálu boltanum af þeim aftur og aftur með svæðispressu.  Njarðvík náði mest 18 stiga forystu en leiddi í hálfleik með 16 stigum, 30-46.

Það var gjörbreytt Tindastólslið sem kom til leiks í síðari hálfleik og það var ljóst frá fyrstu mínútu að þær ætluðu að selja sig dýrt í þessum leik.  Varnarleikurinn var frábær og í sókninni tók Tessondra Williams yfir leikinn en hún hafði haft fremur hægt um sig í fyrri hálfleik.  Með mikilli baráttu nöguðu Tindastólsstelpurnar niður forskot Njarðvíkinga sem virkuðu á köflum hálf ráðvilltar og höfðu kannski átt von á því að eftirleikurinn yrði auðveldur eftir fyrri hálfleikinn.  En aldeilis ekki.  Tindastóll komst yfir í fyrsta skipti með frábærum þrist frá Valdísi Ósk Óladóttur þegar um fimm og hálf mínúta voru eftir og eftir það skiptust liðin á forystunni.  Á lokamínútunni leit út fyrir að Njarðvík ætlaði að sigla sigrinum heim með frábærri hittni á vítalínunni og þær voru 3 stigum yfir þegar 15 sekúndur lifðu leiks eftir að Júlía hafði sett niður tvö víti.  Arnoldas Kuncaitis, þjálfari Stólastelpna setti upp leikkerfi fyrir lokasóknina og þegar 6 sekúndur voru eftir fékk Eva Rún Dagsdóttir skotfæri og setti niður risaþrist og jafnaði metin við ærandi fögnuð heimamanna á pöllunum.  Tessondra Williams kláraði svo leikinn fyrir heimakonur með því að skora 15 stig í framlengingunni og hún og stöllur hennar náðu að spila góða vörn á Njarðvíkurstelpurnar.

Frábær sigur heimakvenna staðreynd og vel fagnað!

Eins og áður segir var T. Williams maður leiksins, skoraði 48 stig og tók 9 fráköst.  Marín Lind Ágústsdóttir átti líka frábæran leik og skilaði 20 stigum og Eva Rún var með 12 stig og þar á meðal jöfnunarkörfuna frábæru.  Hjá gestunum var Kamilla Sól Viktorsdóttir atkvæðamest með 25 stig.

 

Mynd: Hjalti Árna – Eva Rún tryggir framlengingu með þristi

Umfjöllun: Hjalti Árnason
Fréttir
- Auglýsing -