Það var frábær stemning í Síkinu í kvöld þegar bikarmeistarar Tindastóls tóku á móti Íslandsmeisturum KR í toppleik umferðarinnar. Gestirnir byrjuðu ívið betur í hörkuleik en Stólar sýndi það strax að þeir ætluðu ekkert að láta vaða yfir sig á heimavelli og náðu undirtökunum þegar um 3 mínútur voru eftir af fyrsta fjórðung með frábærri baráttu fyrirliðans Helga Rafns og nettum leik Péturs Rúnars. Munurinn hefði getað orðið 12 stig ef ekki hefðu komið til slæm mistök Davenport sem missti boltann klaufalega í lokasókninni og Darri skoraði síðustu stig fjórðungsins úr vítum. Tindastóll leiðir með 8 stigum 29-21.
Arnar Björnsson sem var orðinn leikfær á ný eftir erfið meiðsli hafði þegar sett mark sitt á leikinn í fyrsta fjórðung með 2 þristum og opnaði annan leikhluta með fallegu skoti. Acox svaraði með troðslu og svo skiptust liðin á höggum en KR-ingum gekk illa að höggva mikið í forskot heimamanna. Þeir komust í 35-30 en þá tók Viðar Ágústsson til sinna ráða með tveimur silkiþristum. Axel og Hester bættu svo við og í leikhléi leiddu heimamenn með 11 stigum 48-37.
Hester átti 6 fyrstu stig heimamanna í 3ja fjórðung og Arnar smellti í einn rándýran þrist and one og eftir að Pétur setti niður 3 víti og þriggja mínútna leik var munurinn kominn í 18 stig og stuð á heimamönnum. Gestirnir úr vesturbænum vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og þegar Brynjar missti boltann í næstu sókn og Hester tróð með látum ætlaði þakið að rifna af kofanum. 20 stiga munur 64-44 og Finnur tók leikhlé. Munurinn hélt þó áfram að aukast þangað til Brynjar fór að rigna þristum yfir heimamenn. Pétur Rúnar átti þó svar og smellti einum buzzer þegar þriðji leikhluti rann út og heimamenn leiddu 77-57 fyrir lokafjórðung.
Brilli hélt áfram að hitta í upphafi 4. leikhluta en heimamenn virtust alltaf eiga svar og létu ekki slá sig útaf laginu. Acox sýndi mikla baráttu en svo virtist sem aðrir væru ekki tilbúnir með honum, hvorki Jón Arnór né Pavel spiluðu í lokafjórðung leiksins og augljóst í hvað stefndi. Helgi Margeirs endaði svo leikinn að hætti hússins með þrist á lokasekúndunni, frábær leikur hjá heimamönnum.
Þáttaskil:
Eftir tiltölulega jafnar upphafsmínútur þá tóku heimamenn völdin í leiknum og léku frábærlega. Þeir höfðu viljann í verkið og höfðu svar við öllum brögðum gestanna.
Tölfræðin lýgur ekki:
Stólar voru að hitta mun betur en gestirnir, sérstaklega úr þriggja stiga skotum þar sem þeir hittu 45% gegn 28% hjá KR auk þess að skila 26 stoðsendingum á meðan gestirnir skráðu einungis 12 slíkar.
Hetjan:
Antonio Hester var gríðarlega öflugur í kvöld, skilaði 24 stigum og 9 fráköstum. Pétur Rúnar stjórnaði leik heimamanna frábærlega og skilaði 15 stigum.
Kjarninn:
Tindastóll langaði miklu meira í sigur heldur en gestina sem virtust pirraðir og voru ekki að ná flæði í sinn leik.
Mynd: Stuðningurinn var frábær hjá sjötta manni Tindastóls
Umfjöllun, myndir & viðtal / Hjalti Árna




