Fyrstu umferð Bónusdeildar karla lauk í kvöld með tveimur hörkuleikjum þar sem gestirnir fóru með sigur af hólmi í báðum tilvikum.
Tindastóll sótti sigur til Njarðvíkur eftir mikla spennu, en lokatölur urðu 77–85 Stólum í vil. Á sama tíma unnu KR-ingar ellefu stiga sigur á Grindavík, 80–91, og hefja tímabilið því af miklum krafti.




