Tindastóll leikur sinn annan leik í A-riðli Norður-Evrópudeildarinnar (ENBL) í dag, sunnudaginn 27. september, þegar liðið mætir litáíska liðinu BC Jonava á útivelli.
Flautað verður til leiks í Jonava klukkan 14:00 að íslenskum tíma. Skagfirðingar hófu keppni af miklum krafti fyrr í vikunni með stórsigri gegn Liepāja í Lettlandi og freista þess nú að halda sigurgöngunni áfram í krefjandi útileik gegn sterku liði Jonava. Leikurinn verður í beinni útsendingu hér.




