Bikarúrslitahelgi yngri flokka fór vel af stað í morgun því Haukar og Tindastóll buðu upp á spennandi viðureign í fyrsta leik dagsins. Það voru Stólarnir úr Skagafirði sem reyndust sterkari á endasprettinum og unnu að lokum 45-51 sigur að Ásvöllum þar sem Pétur Rúnar Birgisson var valinn besti maður leiksins með 17 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar í liði Tindastóls. Þá er um söguleg tímamót að ræða í körfuboltasögu Skagafjarðar því þetta var fyrsti bikarmeistaratitill Tindastóls í karlaflokki. Til hamingju Skagfirðingar!
Heimamenn í Haukum leiddu 12-10 eftir fyrsta leikhluta en Viðar Ágústsson opnaði annan leikhluta fyrir Stólana með þrist og staðan 12-13. Gestirnir sigu hægt og bítandi framúr og leiddu 23-29 í hálfleik þar sem Kári Jónsson var kominn með 10 stig í liði Hauka í hálfleik en hjá Tindastól var Kristinn Gísli Jónsson 10 stig.
Hafnfirðingar opnuðu síðari hálfleik 5-0 og minnkuðu muninn í 28-29 en Bjarni Tómasson, sem lék glimrandi vel í dag í liði Tindastóls, kom Stólunum inn í síðari hálfleik með körfu í teignum. Þegar skammt var eftir af þriðja leikhluta náðu heimamenn að jafna 34-34 en þá höfðu rauðir náð taktinum í svæðisvörn sinni og Tindastól gekk illa að finna körfuna. Haukar leiddu því 38-34 fyrir fjórða og síðasta leikhluta og spennandi lokasprettur framundan.

Pétur Rúnar Birgisson sækir að körfu Hauka
Pétur Rúnar Birgisson fór fyrir Tindastól í síðari hálfleik og þristur frá honum kom Stólunum yfir á ný 38-39 en Tindastóll opnaði fjórða leikhluta með 0-7 á hlaupi og komust í 38-41. Bjarni Tómasson var Tindastól gríðarlega mikilvægur en kappinn tók 9 sóknarfráköst í dag og færði því Skagfirðingum urmul annarra tækifæra til að koma boltanum í körfuna.
Kári Jónsson minnkaði muninn fyrir Hauka í 41-43 og á lokasprettinum varð hver karfa gulls ígildi en smiðshöggið rak Kristinn Gísli Jónsson er hann setti þrist þegar mínúta var til leiksloka og kom Tindastól í 45-50. Haukar náðu ekki að nýta tímann til að jafna metin og lokatölur reyndust 45-51 Tindastól í vil.
Maður leiksins var Pétur Rúnar Birgisson með 17 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar hjá Tindastól en Kristinn Gísli Jónsson bætti við 16 stigum og 7 fráköstum og baráttujaxlinn Bjarni Tómasson tók 14 fráköst og skoraði 5 stig. Hjá Haukum var Kári Jónsson stigahæstur með 13 stig en þeir Kristján Leifur Sverrisson og Arnór Bjarki Ívarsson gerðu 10 stig hvor en Kristján var auk þess með 10 fráköst.





