Mikilvægasti leikmaður Keflavíkur síðastliðið tímabil, Þröstur Leó Jóhannsson, hefur ákveðið að segja skilið við úrvalsdeildina og fara niður um deild og leika með drengjum Benedikts Guðmundssonar í 1. deildinni hjá Þór frá Akureyri. Þröstur, sem hafði áður, unnið allt sem í boði var með uppeldisklúbb sínum gefur greinagóðar ástæður fyrir brotthvarfi sínu og þeim vonum fyrir hið nýja hér.
Nokkuð ljóst þykir að þarna sé á ferðinni einhver sá stærsti biti sem 1. deildin hefur séð síðastliðin ár, bæði í þeirri reynslu, sem og, þeim hæfileikum sem hinn, þó ungi, Þröstur hefur. Fólk ætti því að fara að verða spennt yfir þessum nýja metnað sem körfuknattleiksdeild Þórs frá Akureyri hefur fundið með tilkomu þjálfarans Benedikts Guðmundssonar, en hann hafði áður þjálfað Grindavík og KR áður en ákveðið var hjá síðasta liði hans, Þór frá Þorlákshöfn, að endurnýja ekki samning við hann eftir tímabil nú í vor.
Hérna er fréttin frá Þór í heild.




