HomeFréttirÞristunum rigndi er Njarðvík lagði Keflavík í framlengingu

Þristunum rigndi er Njarðvík lagði Keflavík í framlengingu

 
Fjölmenni var mætt á grannaglímu Njarðvíkur og Keflavíkur í Iceland Express deild karla í kvöld og var enginn svikinn með gæðum leiksins en boðið var upp á ekta bræðrabyltu. Til að gera langa sögu stutta höfðu Njarðvíkingar sigur eftir framlengdan leik 104-102 þar sem 34 þriggja stiga körfur voru skoraðar í leiknum. Magnús Þór Gunnarsson fór hamförum í liði Keflavíkur með 9 þrista og nýji maður Njarðvíkinga, Giordan Watson, var besti maður vallarins með 40 stig.
Keflvíkingar byrjuðu mun betur í Ljónagryfjunni, komust í 0-5 þegar Sigurður Þorsteinsson skoraði í teignum og fékk villu að auki og Hörður Axel Vilhjálmsson, sem átti flottar rispur í upphafsleikhlutanum, breytti stöðunni í 4-13 með þriggja stiga körfu. Watson svaraði að bragði fyrir heimamenn og minnkaði muninn í 7-13 með fyrsta þrist heimamanna í leiknum.
 
Þegar rúmar þrjár mínútur voru liðnar af leiknum var Guðmundur Jónsson kallaður inn á í Njarðvíkurliðinu. Þegar hann vippaði sér úr upphitunartreyjunni reyndist hann hafa gleymt sjálfum búningnum inni í klefa, hann kom skömmu síðar inn á og átti eftir að stimpla sig rækilega inn og byrjaði á því að hnupla einu stykki bolta.
 
Gestirnir voru baráttuglaðir í byrjun leiks á meðan heimamenn voru ósáttir við dómgæsluna og fannst á sig hallað. Keflvíkingar náðu fljótt að breyta stöðunni í 9-21 en þá hrökk Guðmundur Jónsson í gang, kappinn dritaði niður þristum við hvert tækifæri og nánast einn síns liðs, með einum þristi frá Hirti Einarssyni aukalega, náðu Njarðvíkingar að minnka muninn í 21-23 og þannig stóðu leikar eftir fyrstu tíu mínúturnar, innansveitarkrónikan fór sem sagt vel af stað.
 
Magnús Þór Gunnarsson ætlaði ekki að líða það að vera skilinn útundan í þriggja stiga keppninni og kom Keflavík í 21-26 en þá vildi Giordan Watson kveða sér hljóðs og sallaði niður þremur þristum og Njarðvíkingar komnir yfir 33-31 þegar Hjörtur Hrafn Einarsson setti, já þið giskuðuð rétt, hann setti þrist, hvað annað, liðin hreinlega nenntu ekki inn í teig! Þetta var í fyrsta sinn á 24 mínútum í leiknum sem Njarðvíkingar leiddu.
 
Þegar fimm mínútur voru til hálfleiks fékk Hörður Axel Vilhjálmsson sína þriðju villu í liði Keflavíkur og ef Njarðvíkingar héldu að Keflvíkingar myndu linna látum fyrir vikið þá skjátlaðist þeim. Magnús Gunnarsson átti rosalega dag í Keflavíkurliðinu og kom sínum mönnum í 37-40 með einum af níu þristum sínum í kvöld. Merkilegt var að sjá að varnir liðanna virtust ekki eiga svör við bestu skotmönnum vallarins, þeim Magnúsi og Watson og því rigndi þristunum úr öllum áttum.
 
Hraðinn var mikill í fyrri hálfleik og lauk honum svona á klúðurslegum nótum beggja liða þar sem sendingar voru lélegar og mörg hver færin ekki nýtt til hins ítrasta en Keflvíkingar leiddu 43-45 í hálfleik eftir að Magnús Þór hafði sett þrist þegar 13 sekúndur lifðu af fyrri hálfleiknum.
 
Magnús var með 12 stig hjá Keflavík í hálfleik, öll úr þriggja stiga skotum og Giordan Watson var með 16 stig í Njarðvíkurliðinu sem setti 11 þrista í 21 tilraun í fyrri hálfleik, fín nýting, en hún var betri hjá gestunum, 8 stykki af 14!
 
Það sem svo var boðið upp á í síðari hálfleik verður vart kallað annað en sýning. Keflvíkingar héldu áfram í svæðisvörn og með hana að vopni tókst þeim að gera heimamönnum erfitt fyrir. Varnarleikurinn virtist samt bara flækjast fyrir báðum liðum en þróun leiksins var þannig að annað hvort hoppaðir þú upp á ótemjuna og reyndir að halda þér eða þú dast af baki, hvorugt liðið hafði í raun stjórn á leiknum.
 
Njarðvíkingar gerðust ansi vandræðalegir í þrígang er þeir komust í hraðaupphlaup og brenndu af sniðskotunum, munaður sem ekki má láta fram hjá sér fara og raunveruleiki sem grænir hafa ekki búið við í vetur, hugsanlega teljandi á fingrum annarrar handar hraðaupphlaup liðsins þetta tímabilið.

 
Keflavík vann þriðja leikhluta 27-30 og leiddu því 70-75 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Watson var magnaður í Njarðvíkurliðinu og Guðmundur með fínar rispur en þeir Magnús, Sanders og Ciric áttu flotta spretti hjá Keflavík.
 
Njarðvíkingar smelltu sér í skamma stund í svæðisvörn í fjórða leikhluta en Keflvíkingar, sem berjast um mögulega deildarmeistaratign, urðu fyrri til að ná undirtökunum og komust 10 stigum yfir, 72-82 snemma í leikhlutanum.
 
Með Watson í broddi fylkingar náðu Njarðvíkingar að minnka muninn og Guðmundur Jónsson hafði þar einnig hönd í bagga er hann gerði fimm stig í röð. Á lokaspretti fjórða leikhluta hrundu niður einhverjar dýrustu körfur tímabilsins, Jóhann Árni með þrist og mínúta eftir og staðan 89-88 Njarðvík í vil, Magnús svaraði að bragði og 89-91 Keflavík í vil, Watson jafnaði eftir gegnum brot, 91-91, Ciric kom Keflavík í 91-93 af vítalínunni og þegar 30 sekúndur voru til leiksloka jafnaði Watson 93-93 með regnbogaskoti yfir Sigurð Þorsteinsson í Keflavíkurteignum.
 
Óhætt er að segja að neglur hafi verið nagaðar á þessum tímapunkti en það átti ekki við um Friðrik Stefánsson sem varði skot frá Herði Axeli þegar 7 sekúndur voru til leiksloka. Keflavík tók innkast og boltinn barst til Ciric sem skrikaði fótur og fékk dæmt á sig skref sem Keflvíkingar voru ekki sáttir við og vildu villu.
 
Njarðvíkingar áttu lokaskotið, Watson braust í gegnum teiginn og ætlaði að leggja boltann aftur yfir Sigurð í Keflavíkurteignum en skotið geigaði og því varð að framlengja í stöðunni 93-93.
 
Þröstur Leó Jóhannsson, gerði 7 stig í kvöld, og fimm af þeim komu í einni bunu í upphafi framlengingar. Njarðvíkingar létu ekki stinga sig af og jöfnuðu 99-99. Magnús Þór splæsti þá í þrist og breytti stöðunni í 99-102 þegar 59 sekúnur voru til leiksloka.
 
Watson minnkaði muninn í 101-102 af vítalínunni, næsta Keflavíkursókn fór forgörðum og aftur var Watson sendur á línuna og kom Njarðvík í 103-102 þegar 28 sekúndur voru eftir. Keflvíkingar héldu í sókn, náðu ekki að skora, Njarðvíkingar náðu frákastinu þegar um 10 sekúndur voru eftir og lögðu af stað en Keflvíkingar unnu boltann að nýju, Magnús Þór fékk hann í teignum og brenndi af erfiðu sniðskoti, næst varð darraðardans í frákastinu og boltinn endaði utan vallar og Njarðvíkingum dæmdur boltinn þegar 3 sekúndur voru til leiksloka.
 
Leikhlé var tekið og Njarðvík fékk boltann á miðjunni, Magnús Þór braut þá á Jóhanni Ólafssyni sem fór á línuna og tryggði Njarðvíkursigurinn með því að setja fyrra vítið en brenna af því síðara enda 0,92 sek. eftir á klukkunni og því ekki nægur tími fyrir gestina til að ná af skoti, lokatölur 104-102 Njarðvík í vil í spennandi og skemmtilegum nágrannaslag.
 
Með sigrinum færðust Njarðvíkingar upp í 6. sæti deildarinnar með 16 stig en Keflavík er sem fyrr í 3. sæti með 26 stig. Umferðinni lýkur svo annað kvöld með þremur leikjum.
 
Byrjunarlið Njarðvíkur: Giordan Watson, Nenad Tomasevic, Jóhann Árni Ólafsson, Páll Kristinsson og Friðrik Stefánsson. (Njarðvík lék án Jonathan Moore í kvöld)
 
Byrjunarlið Keflavíkur: Thomas Sanders, Hörður Axel Vilhjálmsson, Þröstur Leó Jóhannsson, Andrija Ciric og Sigurður Þorsteinsson. (Keflavík lék án Gunnars Einarssonar í kvöld)
 
Heildarskor:
 
Njarðvík: Giordan Watson 40/4 fráköst/5 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 24/8 fráköst, Nenad Tomasevic 13, Jóhann Árni Ólafsson 8, Hjörtur Hrafn Einarsson 8, Páll Kristinsson 4, Rúnar Ingi Erlingsson 3, Egill Jónasson 2, Friðrik E. Stefánsson 2/12 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 0, Óli Ragnar Alexandersson 0, Kristján Rúnar Sigurðsson 0.
 
Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 30, Hörður Axel Vilhjálmsson 22/7 fráköst/6 stoðsendingar, Andrija Ciric 17/7 fráköst, Thomas Sanders 15/11 fráköst/8 stoðsendingar, Þröstur Leó Jóhannsson 7/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 6/5 fráköst, Jón Nordal Hafsteinsson 4, Halldór Örn Halldórsson 1, Almar Stefán Guðbrandsson 0, Kristján Tómasson 0, Ragnar Gerald Albertsson 0, Gunnar H. Stefánsson 0.
 
Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson
 
Myndir og umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -