spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞórir Guðmundur og Oviedo lögðu Ourense örugglega

Þórir Guðmundur og Oviedo lögðu Ourense örugglega

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Oviedo lögðu Ourense nokkuð örugglega í Leb Oro deildinni á Spáni í dag, 75-58.

Eftir leikinn er Oviedo í 13. sæti deildarinnar með fjóra sigra og átta töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 19 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur sex stigum, tveimur fráköstum og þremur stoðsendingum.

Næstir leikur Þóris og Oviedo er þann 22. desember gegn Ægi Þór Steinarssyni og félögum í HLA Alicante.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -