spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞórir Guðmundur öflugur í sigri Oviedo

Þórir Guðmundur öflugur í sigri Oviedo

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Oviedo lögðu Melilla í kvöld í Leb Oro deildinni á Spáni, 67-70.

Eftir leikinn eru Oviedo í 16. sæti deildarinnar með tvo sigra og sjö töp það sem af er tímabili.

Á tæpum 29 mínútum spiluðum skilaði Þórir 11 stigum, 4 fráköstum og 2 stoðsendingum.

Næsti leikur Oviedo er þann 6. desember gegn Valladolid.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -