spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞórir Guðmundur með 11 stig gegn Forca Lleida

Þórir Guðmundur með 11 stig gegn Forca Lleida

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Oviedo máttu þola tap í kvöld fyrir Forca Lleida í Leb Oro deildinni á Spáni, 76-65.

Eftir leikinn eru Oviedo í 13. sæti deildarinnar með sex sigra og sautján töp það sem af er tímabili.

Á um 25 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur 11 stigum, frákasti, stoðsendingu og stolnum bolta.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -