spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞórir Guðmundur frábær í sterkum sigri Landstede Hammers

Þórir Guðmundur frábær í sterkum sigri Landstede Hammers

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Landstede Hammers lögðu Aris Leeuwarden í kvöld í BNXT deildinni í Hollandi, 82-75.

Eftir leikinn eru Hammers í 3. sæti deildarinnar með tíu sigra og fimm töp það sem af er tímabili.

Á 37 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur 18 stigum, 7 fráköstum, 3 stoðsendingum og 5 stolnum boltum.

Næsti leikur Þóris og Hammers er þann 23. janúar gegn Den Helder Suns.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -