spot_img
HomeFréttirÞóranna og Iona Gaels lögðu Rider Broncs

Þóranna og Iona Gaels lögðu Rider Broncs

Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels lögðu Rider Broncs í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 58-65.

Eftir leikinn er Iona í 8. sæti MAAC deildarinnar með sjö deildarsigra og tíu töp það sem af er tímabili.

Á 14 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóranna 4 stigum, 5 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.

Það er stutt á milli leikja hjá Þórönnu og Iona, en næst leika þær strax í kvöld gegn Monmouth Hawks.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -