spot_img
HomeFréttirÞóranna og Gaels töpuðu fyrir Monmouth Hawks

Þóranna og Gaels töpuðu fyrir Monmouth Hawks

Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels léku loks í dag í bandaríska háskólaboltanum eftir að síðustu fjórum leikjum þeirra hafði annaðhvort verið frestað eða þeim aflýst vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar, en í þessum fyrsta leik síðan 24. nóvember máttu þær þola níu stiga tap fyrir Monmouth Hawks, 64-55.

Það sem af er tímabili hafa Gaels unnið tvo leiki og tapað fjórum.

Á 15 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóranna tveimur stigum og frákasti.

Næsti leikur Þórönnu og Gaels er þann 22. desember gegn Marist Red Foxes.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -