spot_img
HomeFréttirÞóranna atkvæðamikil í þriðja sigurleik Iona Gaels í röð

Þóranna atkvæðamikil í þriðja sigurleik Iona Gaels í röð

Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels lögðu Monmouth Hawks í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 69-65.

Eftir leikinn er Iona í 7. sæti MAAC deildarinnar með átta deildarsigra og 10 töp það sem af er tímabili.

Á 34 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóranna 11 stigum, 4 fráköstum, 4 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Þórönnu og Iona er þann 3. mars gegn Niagra Purple Eagles.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -