spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaÞóra Kristín og Ástrós Lena töpuðu fyrsta leik tímabilsins - AKS...

Þóra Kristín og Ástrós Lena töpuðu fyrsta leik tímabilsins – AKS Falcon enn í toppsætinu

Þóra Kristín Jónsdóttir, Ástrós Lena Ægisdóttir og AKS Falcon máttu þola tap í kvöld fyrir BMS Herlev í dönsku úrvalsdeildinni, 74-72.

Leikurinn sá fyrsti sem að Falcon tapa í vetur, en þær eru þrátt fyrir það í efsta sæti deildarinnar, núm eð 10 sigra og 1 tap.

Á tæpum 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóra 2 stigum, 5 fráköstum, 4 stoðsendingum og 3 stolnum boltum. Ástrós Lena lék rúmar 18 mínútur og var með 9 stig, 2 fráköst, stoðsendingu og stolinn bolta.

Næsti leikur Falcon í deildinni er þann 20. febrúar gegn BK Amager.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -