HomeFréttirÞór úr leik eftir tap gegn Fjölni

Þór úr leik eftir tap gegn Fjölni

 

Þór 52 – Fjölnir 67

 

Þórsstelpurnar tóku á móti Fjölni eftir stórkostlegan sigur í 3ja leik liðanna í Grafarvoginum.  Þannig héldu þær sér inni í einvíginu og nú var spurning um að láta kné fylgja kviði                              

 

Þór – Fjölnir   fjórði leikur

 

1. leikhuti: 

Óhætt er að segja að Þórsstelpur hafi mætt með vængbrotið lið í þennan fjórða leik.  Fimm stelpur sem hafa verið meira og minna í byrjunarliðinu í vetur voru fjarverandi vegna ýmissa ástæðna, Rut Herner, Unnur Lára, Helga Rut, Erna Rún og Magdalena allar fjarri góðu í kvöld. Byrjunarliðið var því svo til alveg nýtt, þó svo að einhverjar þeirra sem voru mættar út á völlinn voru vanar því að byrja.   Það má líta á þetta sem mikilvæga reynslu fyrir þær sem komu inn í byrjunarliðið en það hefði verið betra ef það hefði verið undir öðrum formerkjum.

 

Það þýddi þó ekkert að hengja haus og gefa leikinn.  Þær sem spiluðu gerðu það vel og héldu Fjölnisstelpunum frá körfunni.  Eftir 6 mínútur var staðan einungis 4 – 4.  

 

Í kjölfarið fóru þó Fjölnisstelpur að finna fjölina sína og settu niður 6 stig í röð.  Því svöruðu heimastelpur með þriggja stiga körfu en lokakarfan var úr Grafarvoginum.

 

Staðan eftir fyrsta leikhluta 7 – 12.

 

2. leikhluti:

 

Annar leikhluti var erfiður fyrir heimastelpurnar í upphafi en svo tóku þær við sér og fóru að trúa á eigin getu.  Staðan eftir 4 mínútur í öðrum leikhluta var komin í 17 – 20 og spenna í leiknum.  Baráttan hélt áfram og stóðu Þórsstelpur vel í Fjölnismönnum og virðist fjarvera hinna öflugu leikmanna  hafa minni áhrif en áhangendur Þórsliðsins óttuðust. Þórsarar hleyptu Fjölni aðeins of langt frá sér en náðu að minnka muninn fyrir hálfleik og staðan eftir tvo leikhluta var 25 – 31.  Leikurinn alls ekki búinn og má búast við hörkuleik eftir hlé.

 

3. leikhluti: 

Barátta allan leikhlutann og eftir hann náðu gestirnir 9 stiga mun 39 – 48.  Það var aðeins farið að draga af Þórsurum enda bara með tvo skiptimenn og önnur þeirra meidd og kom lítið sem ekkert inn á.

 

4 leikhluti: 

Fjölnir byrjar leikhlutann af krafti og ætlar að klára seríuna með stæl  41 – 54 og 8:40 eftir.  Þetta verður þungur róður fyrir heimastúlkur en þær mega eiga það að þær gefast ekki upp og fara í öll fráköst og lausa bolta.   Munurinn hangir í 8 – 12 stigum og stelpurnar úr Þorpinu eru orðnar ansi þreyttar á fótunum og einbeitingin að gefa sig.  Eðlilegt þar sem keyrt er á sömu stelpunum allan leikinn.  

 

Góð barátta einkenndi Þórsliðið í þessum leik og fjarvera lykilmanna hafði minni áhrif en ætla mátti.  Frábær frammistaða hjá þessum stelpum þó svo að einvígið hafi tapast 1 – 3. 

 

Heiða Hlín og Hrefna voru  með 15 stig, Kristín Halla var með 12 stig og 10 fráköst, Gréta Rún 6 stig, Sædís Gunnarsdóttir 3.

 

Hjá Fjölni var Berglind Karen með 20 stig og 10 fráköst, Aníka Lind 11 stig, McCalle Feller 10 stig, Guðrún Edda 9 stig, Margrét 6, Erla Sif 4, Margrét Ósk 3 og þær Svla og Rakel Linda 2 stig hvor.  

 

Það hefði verið gaman að sjá Þórsliðið með alla sína bestu leikmenn inni á vellinum án þess að draga eitthvað  úr framgöngu þeirra er komu inn í staðinn.

 

Tölfræði leiksins: 

 

Umfjöllun Sigurður Freyr

Mynd með frétt Palli Jóh

Fréttir
- Auglýsing -