Kvennalið Þórs Þorlákshafnar hafði betur gegn ÍR, 85–70, í fyrsta leik kvennakeppninnar á Icelandic Glacial mótinu í Þorlákshöfn í kvöld.
Gestirnir úr Breiðholti byrjuðu betur og leiddu eftir fyrsta leikhluta, 20–14, sem og í hálfleik, 39–33. Heimakonur í Þór sneru hins vegar taflinu rækilega við í síðari hálfleiknum. Með frábærum þriðja leikhluta (31–11) náðu Þórsarar öruggri forystu og sigldu fimmtán stiga sigri í höfn.
Shawnteanna Tillman fór fyrir liði Þórs með 32 stig og 7 fráköst, Jóhanna Ýr skoraði 23 stig og Antonia Alexe bætti við 19 stigum. Hjá ÍR var Foskey óstöðvandi með 33 stig og 12 fráköst, Gréta skoraði 14 stig og Stefanía Tara skilaði 13 stigum.




