9:15
{mosimage}
Þór Þorlákshöfn hefur samið við bandaríska leikmanninn Tom Port um að leika með liðinu næsta vetur. Tom þessi er nýútskrifaður úr Wooster skólanum og lék þar með liðinu í NCAA III og skoraði 16,1 stig að meðaltali með liðinu síðasta árið sitt.
Þess má til gamans geta að Port mun starfa á lögfræðistofu í sumar en hann stefnir að lögfræðinámi í framtíðinni.
Mynd: www.jcu.edu