HomeFréttirÞór fallið eftir tap gegn Val

Þór fallið eftir tap gegn Val

 

Þór fell úr efstu deild karla í körfubolta í kvöld eftir tap gegn Val eftir tveggja ára veru í deild þeirra bestu.

 

Gangur leiks:

28-18 / 13-18 / 15-22 / 15-19

 

Fyrir leikinn var ljóst að Þór yrði að vinna Val að minnsta kosti með 15 stigum til þess að eiga von um að halda sæti í efstu deild að ári. Og vissulega byrjaði leikurinn vel fyrir Þór því eftir að fyrsta leikhluta lauk hafði Þór 10 stiga forskot 28-18. Leikmenn Þórs og stuðningsmenn Þórs voru sáttir við þessa byrjun og men eygðu von.

 

Hlíðarendapiltar mættu hins vegar grimmir til leiks í öðrum leikhluta og skoruðu fyrstu 8 stig leikhlutans og skyndilega var forskot Þórs komið niður í tvö stig 28-26 eftir tveggja og hálfs mínútna leik. Þegar um þrjár mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta kom loks karfa frá Þór og þar smellti Júlíus Orri niður einum þrist 31-28. Þór náði um tíma 8 stiga forskoti 40-32 en gestirnir bitu frá sér á lokaspretti fyrri hálfleiks minnkuðu muninn í 5 stig 41-36 og þannig var staðan í hálfleik. Valur vann leikhlutann 13-18.

 

Valsmenn léku sama leikinn í upphafi þriðja leikhluta líkt og þeir gerðu í öðrum leikhluta þ.e. þeir settu niður fyrstu 8 stigin og eftir tveggja og hálfs mínútna leik höfðu Hlíðarendapiltar forystunni 41-42. Þór komst yfir á nýjan leik 45-42 en Valsmenn jöfnuðu 45-45 og Austin Bracey kom svo Val yfir 45-48 með þristi þegar um 4 mínútur voru eftir að leikhlutanum. Þessa forystu létu Valsmenn aldrei frá sér það sem eftir lifði leiks. Valur vann leikhlutann með 7 stigum 15-22. Eitt af því sem varð Þórsliðinu dýrkeypt í þessum leikhluta var sú staðreynd að leikmenn Vals hirtu hvert sóknarfrákastið af öðru og Þórsurum alveg fyrirmunað að taka sín varnarfráköst. Valur leiddi með tveim stigum þegar fjórði leikhlutinn hófst 56-58.

 

Þrátt fyrir ágætis baráttu leikmanna Þórs þá gekk fátt upp í þeirra leik í loka fjórðungnum og réðu þeir illa við Urald King sem skorða 10 stig á lokakaflanum og kórónaði frábæran leik þar sem hann skoraði 35 stig og tók 15 fráköst. Gestirnir unnu leikhlutann með 4 stigum 15-19 og sex stiga sigur gestanna staðreynd 71-77.

 

Úrslit kvöldsins þýða það að Þór er fallið úr deild þeirra bestu eftir tveggja ára veru. Eftir leik Þórs og Vals í fyrri umferðinni þar sem Marques meiddist illa og svo meiðsl Ingva Rafns þar á eftir gekk fátt upp hjá liðinu. Og ekki bætti úr skák að missa fyrirliðann, Pálma Geir í meiðsl og þessi áföll hafa reynst liðinu erfið. Svo hvernig sem menn velta sér upp úr hlutunum þá var það ekki endilega leikurinn í gærkvöld sem varð Þór að falli.

 

Stigahæstir í liði Þórs voru Ingvi Rafn Ingvarsson með 15 stig og Bjarni Rúnar Lárusson með 14. Marques Oliver var með 12 stig og 9 fráköst, Júlíus Orri var með 11 stig og 2 fráköst, Nino Johnson 10 stig og 7 fráköst, Hilmar Smári 5 stig og 6 fráköst. Þá voru þeir Ragnar Ágústsson og Sindri Davíðs með 2 stig hvor.

 

Hjá Val var Urald King allt í öllu og skoraði 35 stig og tók 15 fráköst og vantaði aðeins eitt frákast til að vera með jafn mörg og Marques og Nino til samans. Austin Bracey var með 18 stig, Oddur Birnir 7, Birgir Björn 4 stig og 12 fráköst, Illugi 4 stig, Gunnar Ingi og Sigurður Dagur 3 stig hvor, Þorgeir Kristinn 2 og Benedikt Blöndal 1.

 

Tölfræði leiks

Staða í deild

Myndasafn

 

Umfjöllun, myndir / Palli Jóh

Fréttir
- Auglýsing -