spot_img
HomeFréttirÞjálfari Curry og Jóns Axels væntanlegur til landsins

Þjálfari Curry og Jóns Axels væntanlegur til landsins

Bob McKillop þjálfari Davidson háskólans verður aðalfyrirlesarinn á Þjálfaranámskeiði KKÍ dagana 1-3 júní næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. 

 

Á heimasíðu KKÍ segir: „Bob McKillop hefur verið aðalþjálfari Davidson háskólans í NCAA undanfarin 29 ár eða frá árinu 1989. Bob var meðal annars þjálfari Stephen Currys á sínum tíma, sem er ein stærsta stjarnan NBA-deildarinnar í dag, og er auðvitað núverandi þjálfari Jón Axels Guðmundssonar, sem leikur með liðinu við góðan orðstír þessa dagana. Liðið komst í 64-liða úrslit háskólaboltans í ár sem dæmi.“
 

„Mackillop hefur náð eftirtektarverðum árangri með Davidson þar sem hann er ekki alltaf með þá jafn mikla hæð og eins mikla íþróttamenn og stærri skólarnir tefla oft fram, en nær fram frábærri liðsheild og samvinnu, og nýtir sér aðra styrkleika leikmanna sinna, ekki ólíkt því sem við þekkum með okkar landslið á undanförnum árum.““
 
Þetta er námskeið sem áhugasamir ættu alls ekki að láta framhjá sér fara. Allir þjálfarar geta skráð sig á þetta námskeið sem er hluti 3.a í þjálfaramenntun KKÍ.

Skráning og þátttökugjald:
Skráning er hafin á kki.is hérna en allir sem skrá sig fyrir 18. maí fá þátttökugjaldið á 25.000 kr. en eftir það verður það 30.000 kr.

 

Fréttir
- Auglýsing -