spot_img
HomeFréttirÞetta eru liðin sem mætast í undanúrslitum Subway deildarinnar

Þetta eru liðin sem mætast í undanúrslitum Subway deildarinnar

Einn leikur fór fram í átta liða úrslitum Subway deildar kvenna í kvöld.

Stjarnan lagði Hauka með tveimur stigum í Ólafssal, 73-75. Með sigrinum tryggðu nýliðar Stjörnunnar sér sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar.

Það er því ljóst að í undanúrslitum mun Stjarnan mæta Keflavík og í hinu einvíginu eigast við Njarðvík og Grindavík.

Tölfræði leiks

Leikur dagsins

Subway deild kvenna – 8 liða úrslit

Haukar 73 – 75 Stjarnan

Stjarnan vann 3-2

Fréttir
- Auglýsing -