spot_img
HomeFréttirÞetta er liðið sem ferðast til Matoshinos í dag – Evrópumótið hefst...

Þetta er liðið sem ferðast til Matoshinos í dag – Evrópumótið hefst á föstudag

Undir 18 ára drengjalið Íslands ferðast í dag til Matoshinos í Portúgal þar sem þeir munu taka þátt í B-deild Evrópumóts FIBA. Keppni hefst 21. júlí en Ísland leikur í riðli með Norður-Makedóníu, Austurríki, Bretlandi og Noregi. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1.-8. og 9.-22. 

Liðið hefur leik gegn Bretlandi á föstudaginn kl. 19:30 að íslenskum tíma.

Keppnin stendur yfir frá 21.-30. júlí.

Lifandi tölfræði og streymi verður aðgengilegt á heimasíðu mótsins í kringum leikina.

Hérna er heimasíða mótsins

Íslenska U18 landslið drengja er skipaði eftirtöldum leikmönnum:

Arnór Tristan Helgason · Grindavík
Birgir Leó Halldórsson · Zentro Basket, Spánn
Birkir Hrafn Eyþórsson · Selfoss
Brynjar Kári Gunnarsson · Fjölnir
Friðrik Leó Curtis · ÍR
Hallgrímur Árni Þrastarson · KR
Hilmir Arnarson · Fjölnir
Kristján Fannar Ingólfsson · Stjarnan
Lars Erik Bragason · KR
Tómas Valur Þrastarson · Þór Þorlákshöfn
Viktor Jónas Lúðvíksson · Stjarnan
Þórður Freyr Jónsson · ÍA

Þjálfari: Lárus Jónsson
Aðstoðarþjálfarar: Nebojsa Knezevic og Davíð Arnar Ágústsson

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -