spot_img
HomeFréttirÞetta er leikmaðurinn sem Ísland þarf að stoppa í dag - Mæta...

Þetta er leikmaðurinn sem Ísland þarf að stoppa í dag – Mæta Grikklandi í 16 liða úrslitum kl. 15:30

Undir 20 ára lið karla mætir heimamönnum í Grikklandi kl. 15:30 í dag í 16 liða úrslitum Evrópumótsins í Heraklion.

Í riðlakeppni mótsins hafði Ísland einn sigur, gegn Slóveníu, tapaði naumlega gegn Þýskalandi í öðrum leik og síðan nokkuð stórt fyrir Frakklandi í þriðja og síðasta leiknum. Grikkland hafði hinsvegar unnið tvo og tapað einum, en þeir unnu bæði Pólland og Króatíu, en töpuðu fyrir Litháen.

https://www.karfan.is/2023/07/hlynur-fyrir-leikinn-stora-a-morgun-gegn-heimamonnum-i-grikklandi-vid-vitum-thad-nuna-ad-vid-getum-unnid-tha/

Í nýlegri grein á heimasíðu mótsins er Evangelos Zougris leikmaður Grikklands talinn einn af átta bestu leikmönnum keppninnar til þessa, en hann hefur skilað 14 stigum, 11 fráköstum, 2 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti að meðaltali í leik.

Um hann segir á síðunni:

“Lefteris Mantzoukas hefur skorað flest stig fyrir Grikkland á mótinu en Evangelos Zougris er sá sem hefur slegið í gegn. Átján ára gamli framherjinn skilaði 24 stiga og 17 frákösta frammistöðu í opnunarleik Grikklands gegn Póllandi og hefur virst óstöðvandi síðan. Evangelos hefur líka áhrif á vörn Grikklands, þar sem hann leiðir liðið í fráköstum, stolnum boltum og vörðum skotum.”

Leikur Íslands gegn Grikklandi hefst kl. 15:30 og verður í beinni útsendingu hér.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -