spot_img
HomeFréttirÞessir 11 leikmenn mæta Ítalíu í kvöld - Haukur Helgi frá vegna...

Þessir 11 leikmenn mæta Ítalíu í kvöld – Haukur Helgi frá vegna Covid

Ísland á tvo leiki gegn Ítalíu að þessu sinni í H-riðlinum í undankeppni HM 2023. Sá fyrri er í kvöld kl. 20:00 í Ólafssal, en sá seinni komandi sunnudag 27. febrúar í Bologna á Ítalíu.

Hérna er heimasíða mótsins

Hér fyrir neðan má sjá hvaða 11 leikmenn verða í liði Íslands í kvöld, en einn leikmann vantar þar sem að Haukur Helgi Pálsson leikmaður Njarðvíkur greindist með Covid-19 og samkvæmt reglum má ekki breyta hóp á leikdegi.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson – Tindastóll

Ólafur Ólafsson – Grindavík

Martin Hermannsson – Valencia

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – Landstede Hammers

Tryggvi Snær Hlinason – Casademont Zaragoza

Ægir Þór Steinarsson – Acunsa

Kári Jónsson – Valur

Elvar Már Friðriksson – Antwerp Giants

Sigtryggur Arnar Björnsson – Tindastóll

Pavel Ermolinski – Valur

Jón Axel Guðmundsson – Crailsheim Merlins

Fréttir
- Auglýsing -