HomeFréttirÞessi lið mætast í úrslitakeppni Dominos deildar kvenna

Þessi lið mætast í úrslitakeppni Dominos deildar kvenna

Lokaumferð Dominos deildar kvenna fór fram í dag. Ljóst var fyrir daginn að það  yrðu Haukar sem myndu hampa deildameistaratitlinum. Einnig var óljóst hvort það yrðu Stjarnan eða Skallagrímur sem færi í úrslitakeppnina með fjórða sætið, en Skallagrímur hirti sætið með góðum endasprett í deildarkeppninni. 

 

Eftir kvöldið er einnig ljóst hvaða lið það eru sem mætast í undanúrslitum Dominos deildarinnar. Það slær hvergi slöku við en allar viðureignir þessarar umferðar eru ansi spennandi. 

 

Úrslitakeppnin hefst 2. apríl eftir páska en nánari leikjaröðun liggur ekki fyrir. 

 

Viðureignir undanúrslitanna eru eftirfarandi: 

 

Haukar (1) – Skallagrímur (4)

Keflavík (2) – Valur (3)

 
Fréttir
- Auglýsing -