spot_img
HomeBikarkeppniÞessi lið mætast í næstu umferðum VÍS bikarkeppni kvenna

Þessi lið mætast í næstu umferðum VÍS bikarkeppni kvenna

Dregið var í fjórðungs- og undanúrslit VÍS bikars kvenna á skrifstofu KKÍ fyrr í dag.

Stutt er á milli leikja í VÍS bikarnum núna í september, svo nauðsynlegt var að klára að draga mótherja fram að úrslitum.

VÍS bikar kvenna

Lið Hauka, Keflavíkur og Vals eru komin áfram. Fjórar viðureignir eru í 16 liða úrslitum í kvöld, en því miður þá fækkaði liðum í bikarkeppni kvennamegin, svo eftir verða 7 lið í fjórðungsúrslitum. Þannig fer eitt lið beint áfram í undanúrslit, án þess að leika í fjórðungsúrslitum.

Fjórðungsúrslit – laugardagurinn 11. september

Viðureign 1: Stjarnan eða Tindastóll – Valur
Viðureign 2: Keflavík – Haukar
Viðureign 3: KR eða ÍR – Grindavík eða Njarðvík
Viðureign 4: Fjölnir eða Breiðablik (fara áfram í undanúrslit)

Viðureignir í fjórðungsúrslitum skýrast eftir leikina mánudaginn 6. september.

Undanúrslit – miðvikudagurinn 15. september

Sigurvegari viðureign 1 – Sigurvegari viðureign 2
Sigurvegari viðureign 4 – Sigurvegari viðureign 3

Í stuttu máli þýðir þetta að Stjarnan eða Tindastóll eða Valur eiga heimaleik gegn Keflavík eða Haukum í undanúrslitum. Í hinni viðureigninni þá er það Fjölnir eða Breiðablik sem eiga heimaleik gegn KR eða ÍR eða Grindavík eða Njarðvík.

Fréttir
- Auglýsing -