Álftanesi tókst ekki að knýja fram sigur í stórleik 5. umferðar Bónus deildar karla í kvöld og laut í lægra haldi fyrir KR, 94–102, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á allra síðustu mínútunum.
Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Dúa Þór Jónsson, leikmann Álftaness, þar sem hann fer yfir sveiflurnar í leiknum og lærdóminn sem liðið dregur af tapinu.




