spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2021Þessar 12 verða í íslenska hópnum sem mætir Slóveníu kl. 15:00

Þessar 12 verða í íslenska hópnum sem mætir Slóveníu kl. 15:00

Ísland leikur í dag kl. 15:00 við Slóveníu í undankeppni EuroBasket 2021 í búbblunni í Grikklandi. Hingað til í mótinu hefur Slóvenía unnið báða leiki sína á meðan að Ísland hefur tapað báðum sínum.

Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði frá leiknum

Hér fyrir neðan má sjá hvaða 12 leikmenn verða á skýrslu í leik dagsins, en líkt og tekið var fram þegar að hópurinn var upphaflega valinn, verður Anna Ingunn Svansdóttir 13. leikmaður liðsins í dag og því ekki með.

Nafn · Félag (landsleikir)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (2)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (4)
Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (Nýliði)
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur (20) · Fyrirliði
Hallveig Jónsdóttir · Valur (21)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik (4)
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík (Nýliði)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (2)
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir · Keflavík (6)
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester, England (19)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (53)
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar (17)

13. leikmaður: 
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)

Þjálfarar og fararteymi:
Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Danielle Rodriguez
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir
Fararstjóri: Hannes S. Jónsson
Sóttvanrarfulltrúi: Guðbjörg Elíasdóttir Norðfjörð
Liðstjórn: Kristinn Geir Pálsson

Fréttir
- Auglýsing -