spot_img
HomeFréttirThelma Dís og Ball State leika til úrslita um MAC titilinn

Thelma Dís og Ball State leika til úrslita um MAC titilinn

Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Toledo Rockets í gær í undanúrslitum úrslitakeppni MAC deildar bandaríska háskólaboltans, 71-66.

Sigurinn verður að teljast nokkuð afrek fyrir Ball State, en Toledo höfðu áður unnið deildarkeppni MAC deildarinnar, þar sem þær töpuðu aðeins einum deildarleik á tímabilinu.

Thelma Dís lék allar 40 mínútur leiksins og skilaði tveimur stigum, fjórum fráköstum, stoðsendingu, stolnum bolta og tveimur vörðum skotum.

Í dag leika þær úrslitaleik keppninnar gegn Buffalo Bulls, en Bulls höfnuðu í öðru sæti MAC deildarinnar á tímabilinu.

Tölfræði leiks

• ESPN spilarinn mun sýna 67 leiki beint í Marsfárinu, þar með talið Final Four og úrslitaleikinn
• Þú getur stillt inn með því að gerast áskrifandi hér
• Nýjar áskriftir hafa 7 daga prufutímabil
• Spilarinn er aðeins til með ensku viðmóti
• Skilmálar gilda

Fréttir
- Auglýsing -