spot_img
HomeFréttirThelma Dís hefur skorað yfir 1000 stig fyrir Ball State Cardinals

Thelma Dís hefur skorað yfir 1000 stig fyrir Ball State Cardinals

Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals töpuðu í dag fyrir Bowling Green Falcons í bandaríska háskólaboltanum, 58-82.

Það sem af er tímabili hafa Cardinals unnið sjö leiki og tapað fjórum.

Á 30 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 14 stigum, 4 fráköstum og 2 stoðsendingum, en hún var atkvæðamest í liði Cardinals í leiknum.

Með stigunum fjórtán komst Thelma Dís yfir 1000 stig skoruð fyrir skólann, en hún er sú þrítugasta sem að kemst í þann hóp.

Næsti leikur Thelmu og Cardinals er þann 6. janúar gegn Northern Illinois Huskies.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -