HomeNeðri deildir1. deild karlaÞá sjaldan þau réðust í þeim þriðja

Þá sjaldan þau réðust í þeim þriðja

Tímabilið hófst hjá ÍA og Selfossi í 1. deildinni í kvöld þegar liðin mættust í AvAir-höllinni á Akranesi. Skagamenn eru að koma aftur í deildina eftir að hafa spilað í Bónusdeildinni í fyrra og endað tímabilið í neðsta sæti deildarinnar, en þeir spiluðu síðast mótsleik í lok mars. Á sama tíma enduðu Selfyssingar síðasta tímabil í 8. sæti 1. deildar en komust, að margra mati óvænt, í undanúrslit úrslitakeppninnar og spiluðu því síðast mótsleik í lok apríl.

Það má því með sanni segja að það hafi verið komin tilhlökkun í menn að komast aftur á parketið og spila Íslandsmótsleik.

Lið gestanna frá Selfossi hefur tekið frekar litlum breytingum á milli tímabila og Bjarmi Skarphéðinsson heldur áfram að þjálfa liðið. Hjá heimamönnum í ÍA hafa hins vegar verið gerðar töluverðar breytingar á leikmannahópnum á milli tímabila auk þess sem Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur tekið við sem þjálfari liðsins.

Gestirnir frá Selfossi settu niður fyrstu körfu leiksins en heimamenn í ÍA jöfnuðu og eftir það skiptust liðin á áhlaupum í fyrri hluta fyrsta leikhluta. ÍA tók svo aðeins yfirhöndina eftir að hafa verið undir, 12–13, og kláraði leikhlutann 13–4.

Skagamenn bættu svo heldur í í upphafi annars leikhluta en Selfyssingar ætluðu að selja sig dýrt og leyfðu Skagamönnum ekki að slíta sig frá þeim. Vörn ÍA var frekar slök í fyrri hálfleik og Selfyssingar nýttu sér það með því að setja niður mörg opin þriggja stiga skot á meðan skotnýting ÍA var ekki nógu góð á sama tíma. Það dugði þó til að heimamenn leiddu í hálfleik, 44–37.

Það var svo í þriðja leikhluta sem leiðir skildu og úrslitin réðust. ÍA hóf leikhlutann 7–0 og Selfyssingar tóku leikhlé. Það dugði þó ekki til að stöðva leikmenn ÍA sem bættu í og voru búnir að skora 12 stig í leikhlutanum áður en Selfyssingar settu niður sitt fyrsta stig í seinni hálfleik af vítalínunni. Þegar þriðji leikhluti var hálfnaður var forysta heimamanna komin í 20 stig í stöðunni 60–40. Hægt og rólega héldu Skagamenn áfram að bæta í og leikurinn fjaraði frekar mikið út í fjórða leikhluta, sem endaði með 29 stiga sigri ÍA, 106–77.

Skagamenn hefja því tímabilið í 1. deild með kærkomnum heimasigri.

Framlagsmæstu leikmenn

ÍA:

  • Gojko Sudzum: Tvöföld tvenna – 21 stig, 12 fráköst
  • Sölvi Ólason: Tvöföld tvenna – 16 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst
  • Igor Maric: 15 stig (allt úr þristum), 9 fráköst og 5 stoðsendingar
  • Þórarinn Gunnar Óskarsson: 15 stig, 4 fráköst
  • Lucien Thomas Christofis: 10 stig, 5 stoðsendingar

Selfoss:

  • Tristan Máni Morthens: 21 stig, 7 fráköst
  • Halldór Benjamín Halldórsson: 10 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar
  • Gísli Steinn Hjaltason: 10 stig, 3 stoðsendingar

Áhugaverð atriði úr leiknum

  • Frábær mæting var á áhorfendapallana í kvöld, hrós á þessa mætingu sem gefur góð fyrirheit fyrir komandi tímabil hjá ÍA.
  • Aðeins einn leikmaður byrjaði inn á í hvoru liði miðað við liðin sem byrjuðu inn á í síðasta leik liðanna á síðasta tímabili.
  • Pétur Steinn Gunnarsson (fæddur 2011) er nafn sem Skagamenn ættu að leggja á minnið. Hann spilaði í kvöld sínar fyrstu meistaraflokksmínútur (7:40), skoraði 4 stig, gaf 1 stoðsendingu og stal 2 boltum.
  • Allir leikmenn beggja liða komu við sögu í leiknum í kvöld.
  • Þriggja stiga skotnýting liðanna skiptist gjörsamlega í tvo hálfleika:
    • ÍA: 3/18 (16%) í fyrri hálfleik – 7/13 (54%) í seinni
    • Selfoss: 7/19 (36%) í fyrri hálfleik – 4/15 (27%) í seinni
  • Frákastabaráttan var frekar ójöfn:
    • ÍA: 17 sóknarfráköst og 36 varnarfráköst – samtals 53 fráköst
    • Selfoss: 10 sóknarfráköst og 23 varnarfráköst – samtals 33 fráköst
  • Þrátt fyrir 29 stiga mun í lokin skoruðu ÍA mest 12 stig í röð og Selfoss mest 8 stig í röð.

Nánari tölfræði beggja liða má nálgast hér

Umfjöllun: HGH Myndir: Jónas H. Ottósson

Fréttir
- Auglýsing -