HomeBónus deildinBónus deild karlaTekur slaginn áfram með Sindra í Bónus deildinni

Tekur slaginn áfram með Sindra í Bónus deildinni

Friðrik Heiðar Vignisson verður áfram í röðum nýliða Sindra á Höfn í Hornafirði og tekur slaginn með liðinu í Bónus deild karla í vetur.  

Friðrik gekk í raðir Hornfirðinga fyrir síðustu leiktíð eftir að hafa áður leikið með Vestra og Hrunamönnum og skipaði sér fljótt mikilvægan sess innan leikmannahópsins. Í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Sindra er leikmanninum hrósað í hástert fyrir vinnusemi, óeigingjarnt hugarfar og baráttuanda undir körfunni en bent er á að einmitt slíkir liðsmenn reynist dýrmætir þegar stigið er upp í efstu deild.

Fréttir
- Auglýsing -