HomeFréttirTeitur Örlygsson segir „já“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB

Teitur Örlygsson segir „já“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB

Teitur Örlygsson, fyrrum landsliðsmaður og einn sigursælasti körfuknattleiksmaður Íslandssögunnar, hefur greint frá því að hann hafi greitt atkvæði utan kjörfundar og sagt já við áframhaldandi viðræðum við Evrópusambandið.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja skuli að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram laugardaginn 29. ágúst. Þar taka kjósendur afstöðu til þess hvort leggja eigi af stað í viðræðuferli til að kanna hvaða samningur stendur Íslandi til boða.

Teitur bendir á að alþjóðasamningar hafi í gegnum tíðina reynst þjóðinni farsælir og að samningsstaða Íslands sé sögulega sterk um þessar mundir. Hann telur réttast að nýta þá stöðu og senda færustu samningamenn landsins til verksins svo hægt sé að taka fullkomlega upplýsta ákvörðun um heildarniðurstöðu í helstu hagsmunamálum — svo sem öryggis-, gjaldmiðils- og auðlindamálum — áður en kveðinn verður upp lokadómur.

Fréttir
- Auglýsing -