Bakvörðurinn efnilegi, Reynir Bjarkan Bárðardal Robertson, verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst á ökkla í leik KR gegn Ármanni í Bónusdeild karla í gærkvöldi.
Reynir lék aðeins í tæplega þrjár mínútur áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn. Samkvæmt staðfestingu frá félaginu er um brot í ökkla að ræða og verður hann frá æfingum og keppni í sjö til átta vikur, eða fram að jólum og áramótum.
Þetta er mikið áfall fyrir KR sem og 1. deildar lið KV, en Reynir hefur farið afar vel af stað á leiktíðinni og leikið stórt hlutverk með báðum félögum.




