Nýtt lið bætist í körfuboltaflóruna á Íslandi en Léttir hefur tilkynnt að félagið muni leika í 2. deild karla á keppnistímabilinu 2026/27.
Tilkynnt var um komu liðsins á samfélagsmiðlum í samstarfi við ÍR körfubolta. Lið Léttis er skipað ungum og efnilegum körfuknattleiksmönnum og er lagt upp með að hefja nýjan og spennandi kafla í félagsstarfinu með þátttöku í deildarkeppni KKÍ í vetur.
Félagið hvetur áhugafólk til að fylgjast vel með framgöngu liðsins, leikjum og æfingum á komandi leiktíð.




