HomeFréttirTCU með sigur á CSU

TCU með sigur á CSU

 Helena Sverrisdóttir var stigahæst TCU kvenna þegar þær unnu lið Colorado State University í gærkvöld. Með sigrinum er TCU komið með 18-8 í heildarkeppninni og 10-2 í riðlinum.
 Það var meðal annars góðum leik Helenu í seinni hálfleik að þakka sigurinn en CSU leiddi í hálfleik, 21-27. Helena skoraði alls 18 stig í leiknum, tók 2 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á þeim 32 mínútum sem hún spilaði en 15 af þessum 18 stigum komu í seinni hálfleik.

TCU vann að lokum leikinn með átta stigum, 61-53.

Næsti leikur liðsins er á þriðjudaginn eftir viku þegar liðið fær UTAH í heimsókn.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -