Íslenska A-landslið kvenna lék sinn síðasta leik á æfingamóti í Lúxemborg í gær. Liðið tapaði þá fyrir heimakonum í annað sinn í ferðinni.
Eftir flotta byrjun Íslands þar sem liðið fór með 15-18 forystu eftir fyrsta leikhluta. Annar leikhluti var einnig í eign Íslands en staðan í hálfleik var 28-35 Íslandi í vil.
Þriðji leikhlutinn sveik Íslenska liðið hinsvegar og eftir þann leikhluta var staðan 55-47 og staðan orðin slæm. Það batnaði ekki í fjórða leikhluta en lokastaðan var 76-60 fyrir Lúxemborg.
Niðurstaðan þrjú töp á mótinu, tvö gegn Lúxemborg og eitt gegn U20 landsliði Hollands. Liðið lék án nokkurra lykilmanna á mótinu en ungir leikmenn fengu mikilvæg tækifæri til að fá smjörþefinn af landsliðinu.




