Íslenska kvennalandsliðið lék í morgun sinn fyrsta leik á æfingamóti í Lúxemborg. Andstæðingar Íslands í fyrsta leik voru einmitt heimamenn í Lúxemborg og segja má að boðið hafi verið uppá spennuleik.
Staðan í hálfleik var 28-24 fyrir Lúxemborg en íslenska liðið virtist enn ekki vera búið að hrista af sér ferðalag gærdagsins. Ísland leiddi svo að loknum þriðja leikhluta 41-42.
Það dugði ekki til því Lúxemborg hafði að lokum góðan tveggja stiga sigur 55-53. Ísland spilar annan leik í dag kl 19:00 gegn U20 landsliði Hollands.




