HomeFréttirTap hjá Sixers í endurkomu Iversons

Tap hjá Sixers í endurkomu Iversons

Denver Nuggets spilltu fyrir gleði Allen Iverson vað vera kominn aftur á heimaslóðir þegar þeir lögðu Philadelphia í nótt. Þetta var fyrsti leikur Iverson með liðinu eftir að hafa samið við Sixers til loka leiktíar fyrir helgi, en hann skoraði 11 stig og horfði upp á nýju stjörnu liðsins, Andre Iguodala, skora 31, sem dugði þó ekki til.
 
Á meðan unnu NY Knicks góðan sigur á Portland, sem er illa statt vegna meiðslavandræða, Oklahoma vann Golden State og Utah vann San Antonio.
 
Úrslit næturinnar/Tölfræði:
 
Philadelphia 83 Denver 93
New York 93 Portland 84
Oklahoma City 104 Golden State 88
Utah 104 San Antonio 101
Fréttir
- Auglýsing -