Schenker-höll Hauka var loksins full í kvöld enda hefði annað verið alger skandall. Oddaleikur er það sem allir vildu sjá, nema Haukar sem komust 2-0 yfir í seríunni. Að vísu yrði mikið skemmtilegra fyrir Hauka að vinna í oddaleik heima en ef það er ekki orðið klárt nú þegar þá sigrar ekkert lið Keflavík fyrirfram. Jafnvel gæti Gummi Jóns einn síns liðs komið Hafnfirðingum í vandræði en látum kúluna um spádómana…
Spádómskúlan: Í kúlunni sést Guðmundi Jónssyni bregða fyrir og er hann ekki árennilegur á svipinn. Hann er umkringdur hávöxnum mönnum í rauðum kyrtlum og þrátt fyrir berserkjagang Gumma hafa þeir rauðu betur að lokum. Lokatölur 85-73 fyrir rauða.
Þáttaskil
Gestirnir mættu sprækir til leiks og höfðu greinilega tekið þjálfara sinn á orðinu og voru ekkert litlir í sér. Reggie og Maggi byrjuðu að setja sinn þristinn hvor áður en Paul Jones svaraði með einum slíkum. Drengirnir frá Sunny-Kef leiddu fram eftir öllum leikhlutanum en Haukur og Finnur Atli nýttu sér full mikið pláss fyrir utan þriggja stiga línuna og heimamenn komu sér 22-18 yfir fyrir fyrstu leikhlutaskipti.
Keflvíkingar þéttu vörnina svo um munaði í öðrum leikhluta og héldu Haukum í 11 stigum! Engin opin þriggjastiga skot í boði og nú mátti mögulega koma auga á smá taugatitring hjá sumum leikmönnum heimamanna. Aftur buðu Keflvíkingar upp á þristatvennu og nú voru það Maggi og Gummi sem settu þá og takturinn frábær hjá piltunum úr Bítlabænum. Staðan 33-38 í hálfleik. Paul Jones og Kári voru með 10 stig hvor í hálfleik og Gummi og Haxel með það sama samanlagt.
Munurinn hékk í kringum þessi fimm stig fram eftir öllum þriðja leikhluta. CJ var áberandi undir körfunni og Haxel bauð upp á þrist góðan og setti vítið. Með þeirri fjögra stiga sókn voru gestirnir allt í einu komnir í 41-53 sem mætti kalla forskot! Stuðningsmenn Kef-City létu vel í sér heyra en þá var komið að þristatvennu frá Haukum. Kári setti annan þeirra auðvitað en Hjálmar hinn og það var kannski einmitt það sem Haukar þurftu – þ.e. að fá stig frá fleirum en Kára og Paul Jones. 47-53 var staðan fyrir lokaátökin og geggjuð spenna í húsinu!
Haukar eiga marga góða stóra og sterka stráka í rauðum búningi, eins og spádómskúlan greindi frá! Breki Gylfa er einn þeirra og hann skilaði kannski því sem Haukana einmitt vantaði. Hann var ekki lítill í sér og setti 9 stig í röð fyrir sína menn, þrist að síðustu og kom Haukum yfir 58-56 um miðjan leikhlutann. Hver annar en Gummi Jóns svaraði með berserkjaþristi hinum megin! Þvílíkur leikur í gangi og á þessum tímapunkti var við það að sjóða upp úr. Þegar 42 sekúndur voru eftir af leiknum var staðan 62-62 og Emil Barja smellti niður risastórum þristi! Heimamenn náðu mikilvægu stoppi og Kári Jóns virtist vera að klára leikinn með tveimur vítum þegar 27 sekúndur voru eftir, 67-62. Finnur Atli hefur hins vegar haft svo gaman af þessari seríu að hann ákvað að gefa Keflavík smá séns með tæknivillu! Til að gera langa sögu stutta fengu gestirnir 6,6 sekúndur til að jafna leikinn með þristi í lokin. Það gekk ekki og til að kveðja seríuna á viðeigandi hátt setti Paul Jones þrist frá miðju í blálokin! Niðurstaðan 72-66 sigur Hauka í æðislegum körfuboltaleik!
Tölfræðin lýgur ekki
Eins og það hefur verið í undanförnum leikjum tóku Haukar mun fleiri sóknarfráköst en töpuðu talsvert fleiri boltum á móti.
Hetjurnar
Breki Gylfa er fyrstur á blað hér enda sneri hann taflinu við með 9 stigum í röð fyrir sína menn! Það var þó Emil Barja sem setti stærsta skot leiksins. En Keflvíkingar stóðu sig afar vel þrátt fyrir tap og börðust hetjulega. Gummi, Hörður Axel og CJ voru flottir í kvöld en hefðu þurft svolítið meiri hjálp sóknarlega.
Kjarninn
Körfubolti er leikur. Hann virkar þannig að annað liðið þarf að tapa – það er alltaf þannig! Það er nú kannski eini gallinn við þennan æðislega leik og í kvöld lentu Keflvíkingar þeim megin. Ég held að kjarninn sé einfaldlega sá að við segjum bara takk Keflavík og Haukar fyrir æðislega skemmtun! Þvílík sería.
Haukar fá Íslandsmeistara KR í undanúrslitum. Það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig liðin mæta til leiks í þeirri rimmu því átta liða úrslitin voru eins og svart og hvítt hjá liðunum fyrir utan að þau komust bæði áfram! Eina sem við þetta er að bæta er að þetta verður veisla…
Umfjöllun / Kári Viðarsson
Myndir / Davíð Eldur




