Ármann mun taka sæti Hamars/Þórs í úrvalsdeild kvenna í körfubolta á komandi leiktíð, en félögin tvö ákváðu að slíta samstarfi sínu. Ármanni, sem féll á síðasta tímabili, bauðst því sætið og ákvað að þiggja það.
Samhliða þessu framlengdi lykilleikmaðurinn Jónína Þórdís Karlsdóttir samning sinn um eitt ár. Hún segir það frábær tíðindi að Ármann tefli fram bæði kvenna- og karlaliði í efstu deild og að ekki hafi komið annað til greina en að halda áfram hjá uppeldisfélaginu.




