HomeFréttirSvona verða úrslitakeppnirnar… í augnablikinu

Svona verða úrslitakeppnirnar… í augnablikinu

 
Eins og börn að jólum höfum við á Karfan.is hoppað aðeins fram í tímann miðað við núverandi deildarstöðu og kíktum á hvernig úrslitakeppnirnar í Iceland Express deildunum og 1. deild karla verði skipaðar ef þær myndu bresta á í dag. Við gerðum smá rifu á pakkana… bara aðeins að kíkja.
Iceland Express deild karla:
 
Snæfell
KR
Grindavík
Keflavík
Stjarnan
Haukar
ÍR
Tindastóll
 
Fyrsta umferð yrði þá svona:
Snæfell-Tindastóll
KR-ÍR
Grindavík-Haukar
Keflavík-Stjarnan
 
Iceland Express deild kvenna:
 
Hamar
Keflavík
KR
Haukar
Snæfell
Njarðvík
 
Fyrsta umferð yrði þá svona:
KR-Njarðvík
Haukar-Snæfell
 

,,Fyrst leikur lið númer þrjú við lið númer sex annars vegar og lið númer fjögur við lið númer fimm hins vegar. Það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í undanúrslit. Í undanúrslitum skal raða liðum aftur í samræmi við lokaniðurstöðu í deildarkeppni og skal það lið sem var efst þeirra liða sem eftir eru leika við það liða sem var neðst. Hin tvö liðin leika saman. Þau lið sem fyrr sigra í þremur leikjum í undanúrslitum leika til úrslita. Það lið sem þá sigrar fyrr í þremur leikjum telst Íslandsmeistari í Úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik og skal fá afhentan farandbikar og eignabikar.“ 

1. deild karla
Þór Þorlákshöfn
Þór Akureyri
Skallagrímur
Breiðablik
Valur
 
Fyrsta umferðin yrði þá svona:
Þór Þorlákshöfn fer beint upp í úrvalsdeild
Þór Akureyri-Valur
Skallagrímur-Breiðablik
 
Enn er nóg af stigum í boði í öllum deildum svo óhætt er að fullyrða að enn geti töluvert breyst en einn fasti er í þessu og hann er sá að Þór Þorlákshöfn mun leika í úrvalsdeild á næstu leiktíð.
Mynd/ Ágúst og Hamarskonur munu sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna.
 
Fréttir
- Auglýsing -