HomeFréttirSundsvall með sinn annan sigur

Sundsvall með sinn annan sigur

Sænski boltinn hélt áfram í kvöld og unnu Jakob Örn Sigurðarson og félagar í Sundsvall góðan útisigur á 08 Stockholm en Solna, lið Sigurðar Ingimundarsonar og Helga Magnússonar, tapaði á heimavelli fyrir Nörrköping.
Jakob og félagar heimsóttu 08 Stockholm í Frystihúsið, en heimavöllur 08 heitir það. Heimamenn byrjuðu betur og leiddu með 11 í hálfleik en meistararnir frá Sundsvall settu í gang í seinni hálfleik og unnu 87-80. Jakob skoraði 9 stig en stigahæstur var John Jonker með 25 stig. Sundsvall hefur því unnið tvo fyrstu leiki sína.
 
Í Solna voru Nörrköping í heimsókn og 648 manns mættir til að fylgjast með. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en í þriðja leikhluta skoraði Solna aðeins 7 stig gegn 23 gestanna og svo fór að lokum að Solna skoraði 61 stig en Nörrköping 76. Helgi Magnússon skoraði 8 stig og tók 5 fráköst en stigahæstur var Saulius Dumbliauskas með 14 stig. Þar með hefur Solna unnið einn og tapað einum leik í sænsku deildinni.
 
 
Mynd: karfan.is
Fréttir
- Auglýsing -