spot_img
HomeFréttirSumarnámskeið hjá ÍR

Sumarnámskeið hjá ÍR

Spennandi körfuknattleiks og leikja námskeið fyrir krakka á aldrinum 6-9 ára (’03-’06) og 10 – 13 ára (’99 – ’02) verður haldið í íþróttahúsi ÍR við Seljaskóla.
Dagsetning, aldur, tími og verð:
 
11. – 15 júní:
6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr.
10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr.
 
18. – 22. júní:
6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr.
10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr.
 
7.- 10. ágúst:
6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 6.500 kr.
10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 6.500 kr.
 
13.-17. ágúst:
6-9 ára · kl. 09:00 til 12:00 · 7.500 kr.
10-13 ára · kl. 13:00 til 16:00 · 7.500 kr.
 
Hressing er innifalin í verði.
 
Farið verður yfir helstu grunnatriði körfuboltans eins og knattrak, skot, boltafimi, varnarstaðu og fleira. Mælingar á hraða og stökkkrafti. Samvinnuleikir, þrekæfingar, hopp og snerpuæfingar.
 
Umræður verða um markmið, matarræði, samvinnu og íþróttalega framkomu. Auk körfuknattleiks verður farið í aðra leik eins og til dæmis brennó, skotbolta, kýló, ratleiki og fleira.
 
Kristín Markúsdóttir yfirþjálfari yngri flokka ÍR hefur umsjón með námskeiðunum.
 
Nánari upplýsingar veitir Kristín í síma 845-8497 og skrifstofa ÍR í síma 587-7080.
Skráning fer fram á heimasíðu ÍR, www.ir.is
Fréttir
- Auglýsing -