HomeFréttir15 leikmenn valdir fyrir komandi verkefni kvennalandsliðsins - Einn nýliði í hópnum

15 leikmenn valdir fyrir komandi verkefni kvennalandsliðsins – Einn nýliði í hópnum

Pekka Salminen og þjálfarateymi A-landsliðs kvenna hafa tilkynnt 15 leikmanna hóp sem kemur saman til æfinga í byrjun nóvember vegna forkeppni EuroBasket 2029.

Ísland hefur leik í Dublin þann 11. nóvember þegar liðið mætir Írum á útivelli, en í kjölfarið bíða tveir mikilvægir heimaleikir gegn Sviss þann 14. nóvember og Aserbaísjan þann 17. nóvember. Hópurinn æfir saman í aðdraganda verkefnisins en tólf leikmenn verða valdir í ferðina til Írlands, áður en seinni gluggi riðilsins tekur við í febrúar.

Darina Andriivna Khomenska úr Aþenu fær sitt fyrsta tækifæri og er eini nýliðinn í hópnum, en Sara Rún Hinriksdóttir hjá KR leiðir hópinn í reynslu með 38 landsleiki að baki. Salminen til aðstoðar eru þeir Daníel Andri Halldórsson og Jamil Abiad, ásamt Arnóri Gauta Ragnarssyni styrktarþjálfara.

Hópurinn sem var valinn:

  • Anna Ingunn Svansdóttir, Keflavík (20 landsleikir)
  • Ásta Júlía Grímsdóttir, Njarðvík (18 landsleikir)
  • Berglind Katla Hlynsdóttir, Bandaríkjunum (2 landsleikir)
  • Darina Andriivna Khomenska, Aþena (Nýliði)
  • Diljá Ögn Lárusdóttir, Stjarnan (11 landsleikir)
  • Emma Theódórsson, Njarðvík (2 landsleikir)
  • Eva Wium Elíasdóttir, Stjarnan (9 landsleikir)
  • Helena Rafnsdóttir, Njarðvík (3 landsleikir)
  • Isabella Ósk Sigurðardóttir, Grindavík (19 landsleikir)
  • Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, KR (7 landsleikir)
  • Rebekka Rut Steingrímsdóttir, KR (6 landsleikir)
  • Sara Rún Hinriksdóttir, KR (38 landsleikir)
  • Sigrún Björg Ólafsdóttir, Haukar (13 landsleikir)
  • Thelma Dís Ágústsdóttir, Keflavík (29 landsleikir)
  • Þóranna Kika Hodge-Carr, Valur (11 landsleikir)
Fréttir
- Auglýsing -